Forsíða
60.935 greinar á íslensku.
Lukku-Láki
Lukku-Láki er heiti á vinsælum belgískum teiknimyndasögum sem segja frá ævintýrum Lukku-Láka, kúreka sem er fljótari en skugginn að skjóta, í villta vestrinu. Persónan er sköpunarverk belgíska teiknarans Morris (Maurice de Bevere) og birtist fyrsta ævintýrið í teiknimyndablaðinu Sval (franska: Spirou) í október 1946. Frá og með árinu 1955 voru handrit að sögunum um Lukku-Láka samin af franska myndasöguhöfundinum René Goscinny og í samstarfi þeirra Morris og Goscinny náðu bækurnar miklum vinsældum. Eru þær nú meðal mest seldu teiknimyndasagna Evrópu og hafa verið þýddar á hartnær 30 tungumál, þar á meðal ensku, arabísku, þýsku, dönsku, grísku, hebresku, tyrknensku og ítölsku. Á árunum 1977 til 1983 komu fjölmargar Lukku-Láka bækur út á íslensku á vegum Fjölvaútgáfunnar. Íslensk útgáfa Lukku-Láka hófst á ný árið 2016 á vegum Frosks útgáfu og komu út fimm bækur á árunum 2016-2020.
Ekki er að finna neinar vísbendingar í sköpunarsögu Lukku-Láka, sem til dæmis má lesa um í Allt um Lukku-Láka, um að hann hafi verið til eða eigi sér ákveðna fyrirmynd. Hins vegar eiga fjölmargar aðrar persónur í bókunum um Lukku-Láka sér beinar fyrirmyndir, annað hvort teknar beint úr sögu villta vestursins eða þekktar ímyndir úr samtímasögu vesturlanda þegar bækurnar voru gerðar.
Vissir þú...

- … að Todor Zhívkov, leiðtogi Búlgaríu, varð árið 1970 fyrsti leiðtogi austantjaldsríkis sem kom í opinbera heimsókn til Íslands?
- … að Emma Thompson (sjá mynd) er eina manneskjan sem hefur unnið Óskarsverðlaun bæði sem leikari og sem handritshöfundur?
- … að yfirhjúkrunarkonan Jóhanna Knudsen var árið 1941 ráðin af stjórnvöldum til að rannsaka konur og stúlkur sem höfðu haft náin kynni við hermenn í ástandinu?
- … að Gettysborgarávarpið, ein frægasta ræða í sögu Bandaríkjanna, tók aðeins þrjár mínútur í flutningi en var upphaflega flutt beint á eftir vígsluræðu sem tók um tvær klukkustundir?
- … að Fæðing þjóðar, kvikmynd sem sýnir haturssamtökin Ku Klux Klan í hetjulegu ljósi, var fyrsta kvikmyndin sem var sýnd í Hvíta húsinu í Washington?
Fréttir

- 1. maí: Sameinuðu arabísku furstadæmin yfirgefa Samtök olíuútflutningslanda.
- 19. apríl: Þingkosningar fara fram í Búlgaríu. Nýr flokkur fyrrverandi forsetans Rúmens Radev vinnur hreinan meirihluta á þingi.
- 12. apríl: Þingkosningar fara fram í Ungverjalandi. Tisza-flokkurinn, undir forystu Péters Magyar (sjá mynd), sigrar Fidesz-flokk Viktors Orbán forsætisráðherra.
- 8. apríl: Samið er um tveggja vikna vopnahlé í Íransstríðinu.
Yfirstandandi: Borgarastyrjöldin í Jemen • Borgarastyrjöldin í Súdan • Innrás Rússa í Úkraínu / Stríð Rússlands og Úkraínu • Íransstríðið • Stríð Ísraels og Hamas
Nýleg andlát: Oscar Schmidt (17. apríl) • Moya Brennan (13. apríl) • Björgvin Halldórsson (9. apríl)
1. maí
- 2011 - Jóhannes Páll 2. páfi var lýstur sæll af kaþólsku kirkjunni.
- 2015 - Heimssýningin Expo 2015 hófst í Mílanó.
- 2016 - Skógareldar í Fort McMurray í Kanada eyðilögðu 505 hektara lands og 2400 byggingar.
- 2017 - Sósíalistaflokkur Íslands var stofnaður.
- 2019 – Vajiralongkorn, konungur Taílands, gekk að eiga lífvörð sinn, Suthida Tidjai, í óvæntri athöfn.
- 2023 - Bandaríska bankakreppan 2023: Bankinn First Republic Bank varð gjaldþrota.
- 2025 - Mannréttindastofnun Íslands tók til starfa.
- 2026 - Sameinuðu arabísku furstadæmin yfirgáfu Samtök olíuútflutningslanda.
Systurverkefni
|
|